Smári

[Ac/Dc]

05.06.2007 22:20:10 / smassi

Holtsmúli - Langholti - Skagafirði

Jörðin Holtsmúli í Skagafirði

Land 150 ha, þ.a. 27 ha ræktaðir

Jörðin Holtsmúli á Langholti í Skagafirði, landnr. 145981. Land jarðarinnar er 150 ha, þ.a. eru 27 ha ræktaðir. Landamerki jarðarinnar liggja að Ármúla og Reynistað að norðan og vestan, Kárastöðum að austan og Stóru-Gröf syðri að sunnanverðu. Allt land er vel gróið. Veiðihlunnindi í Staðará fylgja jörðinni. Hitaveita er lögð frá Varmahlíð. Gott vegasamband til Sauðárkróks, ca 12 km. 

Íbúðarhús var steypt 1930. Klætt að utan 1981 og þá einangrað. Rishæð er öll nýmáluð með nýjum gólfefnum og uppgerðri snyrtingu. Á miðhæð hafa eldhús og baðherbergi verið innréttuð alveg að nýju og eru í góðu ástandi. Á hæðinni eru ennfremur stofur og sjónvarpshol. Á jarðhæð eru geymslur.

Önnur mannvirki á jörðinni eru: Fjárhús 186 m2 byggt 1954, hlaða 111 m2 byggð 1954, vélageymsla 60 m2 byggð 1949, fjárhús 226 m2 byggð 1976 og minkahús 952 m2 byggð 1987.

Með í kaupum getur fylgt framleiðsluréttur í kindakjöti 129,6 ærgildi , bústofn, 270 kindur og vélar og tæki.

Ásett verð er kr. 50 miljónir án framleiðslurétts, bústofns og tækja.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

 

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 20:57:53 / smassi

Borðið er búið :D

Hell ya, ég er loks búin með borðið.

Þetta er það eina gáfulega sem ég hef gert í vetur :D

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 19:14:10 / smassi

Halló:)

í dag fór ég niðrí kvísl og synda í ánni . : )

með Kára þorra ingva agnesi bestu og tönju og ellu og ernu , og ekki má gleyma sigga á

, Já það var gaman : ) og Steini var í björgunarsveitarbúningum og var bara í því að bjarga fólki, það varlíka fínt : )

og Agnes er geðveikt best!

en jæja, agnes besta tók nokkrar myndir og ELín ýr tók myndband , en það á aldrie eftir að koma á netið held ég...

svo syntum við yfir og svona : ) , agnes var bara e-ð að fljóta í burtu haha : D

 

en bæ


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 00:00:17 / smassi

MÆLIFELL

Ballið á mælifelli var í gærkveldi, geeeðveikt stuð maður shitt.

 

Ég, Steini, Þorri, Sæmi, Jakob og Aron fórum allir með Bigga í Valagerði út á krók, vorum mættir fyrstir eins og vanalega. Bróðir minn var í dyrunum eins og alltaf þannig að ég og þorri vorum alltaf að picka fight til að nota tenglsin hahaha. (Smári þettað er svo augljóst) ahahahahahahahahahahahahahahaha fokk

Ballið byrjaði rólega, ekkert gerðist og fólk mætti seint.

En þegar fólk var mætt byrjaði gamanið og það var , dansað, sungið og í . Það gerðist reyndar ekkert merkilegt á þessu balli, Jonni var barinn í köku og fór heim í fylgd lögreglu. Ég sá Sunnu á ballinu en hvorki kærasti hennar né kærasti Hönnu komu þannig að það varð ekki úr slagnum sem búist var við. Frekar fúlt ef ég skal vera hreinskilinn, maður var alveg fullkomnlega tilbúinn fyrir þetta pakk:D

en já eitt verð ég að segja:ÉG VAR ÓSIGRAÐUR Í SJÓMANN Á BALLINU,

Vann steina með hægri
Vann steina með vinsti
Vann adam með hægri
Vann Jonna með hægri
Vann Jonna með vinstri
Jafntefli við Hannes með vinstri
Jafntefli við Hannes með hægri
Hahahahahahahahahahahahhaa
Og það þorðu ekki fleiri í mig múhahahahahaha

Ég bara varð að setja þetta inn


Og já sá sem er að dissa mig í sambandi við Ingu hann kom heldur ekki á ballið eins og ég var búinn að bjóða honum, allaveganna hitti ég hann ekki. Djöfulsins andskotans helvítis djöfulsins helvítis heitasta helvíti, þetta pakk sko

Ég veit IP töluna þína mother fucker    WANTED:213.176.130.18 

Sigrún var að hözzla Óskar Pál ekkert lítið haahahahahahahahahahahahahahahahahahahahah

Ragga og Palli geggt heit þarna
Ásta var að hözzla Hannes
Ingvi að stinga undan Steina og Þorra
Skari Har sagði Snæbjörtu up
p


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 20:58:27 / smassi

X-B já takk

Ég hef ofsalega lítði að segja og ég bara nenni ekki að blogga, það er skóli og leiðindi. Samræmdu prófin að nálgast hratt og allt orðið crazzy í skólanum.

Ég ætla bar að segja að ég er orðinn flokksbundinn framsóknarmaður og er gengin til liðs við flokk ungra framsóknarmanna í Skagafiðri og ætla ég að beita mér fyrir því að bæta þennan flokk til hins betra undir slagorðunum “Við viljum gamla góða bændaflokkinn aftur.”

En svona til að hafa gaman af lífinu þá ætla ég að setja eina stöku hérna inn:

 

Bændur kátir, ég bæta skal

Bótum á framsóknarflokkinn

Því Smári Hallmar sest hér að

Og Út með drullusokkinn


» 17 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 19:13:13 / smassi

:D

 

Ég er að fara á ball á Blö.. í kvöld & Ragga & Sigrún eru BESTAR!

 

..sjáumst glöð af söngvatni með íslenskt neftóbak í hinni :D

BERJUM HEEEEELV. HÚNVETNINGANA!

- [ ÞÚ VEIST HVER ÉG ER ] MÚHAHAHAHAHA... -

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 18:54:11 / smassi

LETI

Góðan daginn, það hefur mikið verið að gera í páskafríinu svo að ég hef ekki bloggað mikið.

Þetta byrjaði allt saman á Laugardaginn en þá mokaði ég skít með gamla laginu ásamt pabba og sigga. Um kvöldið fór ég, steini og atli á rúntinn á króknum en það var frekar dauður bær.

Sunnudagurinn var alveg eins nema að steini kíkti til okkar og hjálpaði við moksturinn.

Á mánudaginn skrapp ég oní girðingu til að tékka með merina hennar Sigrúnar Ben og viti menn var hún ekki komin ofaní slískurðinn, uhh, það endaði þannig að það þurfti að kalla út Björugnarsveitina og ná henni uppúr. Maður var að vesenast í þessu mest allan daginn.

Á Þriðjudaginn vaknaði ég snemma og fór uppí Minnkahús til að verka rennurnar. Djöfull andskoti var mikið í þeim og var ég u.þ.b 2 tíma að þessu helvíti, en svona til gamans má geta að þegar ég og steini voru upp á okkar besta tókum við þetta á 20 mín. Nú Sigrún Ben kom líka til okkar með þetta dýrindis páskaegg handa mér frá Nóa Siriusi nr.7 fyrir að bjarga merinni sinni. Gott mál. Síðan skrapp ég útí fjárhús og verkaði eina hrútastíjuna.

Í dag fór ég aftur útí fjárhús og verkaði hinar tvær hrútastíjurnar og svona hreinsaði aðeins til þarna.

Á morgun verður svo farið að ríja. Ari kemur og steini sennilega líka og kannski Atli. Þeir verða að ríja féið sem er úti en Pabbi, mamma og siggi verða að ríja féið sem er inni, ég veit ekkert hvar ég verð, sennilega að hjálpa til við að leggja féið sem Ari verður að ríja.

Föstudagurinn verður eins, verðum bara að klára að ríja blessaðar ærnar.

Meira veit ég ekki. Maður hefur það bara gott á laugardaginn og Sunnudaginn og étur páskaegg að íslenskum sið og svo er fermingin hennar Agnesar á Mánudaginn.

 

Ég ætla að grípa tækifærið og skamma þennan 10. bekk aðeins. Ég ætlaði að vera rosalega góður og skipuleggja bílaþvott á þriðjudaginn og miðvikudaginn og talaði við alla nema Sæma held ég og engin nema sigrún gat verið þessa tvo daga, þannig að þetta féll bara um sjálft sig. Uhhh. Það er ekki eins og okkur vanti ekki pening. Síðan var steini að reyna að fá einhvern í rúning upp í Sölvanes á mánudagskvöldið því hann komst ekki og það gat enginn farið þannig að ég kom til og skrapp og hjálpaði kallinum.

Þannig ég veit ekkert hvernig þetta fer. Það hefur greinilega enginn áhuga á því að fara til Danmerkur lengur. Allaveganna hefur enginn vilja til að vinna fyrir því. Alveg merkilegt þetta.

 

En ég hef ekki meira að segja í bili veriði sæl


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 22:54:23 / smassi

Asni

Ok ég ætla að hafa þettað stutt, ég er hættur með Ingu í annað sinn.:!: Ég veit að þetta er rugl og algjört kjaftæði. Þannig, ef einhver vil hreyta yfir mig skömmum og skít þá getið þið commentað:^)

 

Takk fyrir                                                            ≥Smári≤


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 13:45:58 / smassi

X-D, X-B, X-V, X-S, X-F _ eða hvað

Góðan og blessaðan daginn, ég hef ekki bloggað í langa herrans tíð og bæti ég hér með úr því.

Mikið hefur verið að gera núna undanfarið eftir þessa blessuðu árshátíð sem allir elskuðu svo mikið. Maður hefur verið að ganga í fyrirtæki að betla pening (eins og það er nú gaman að betla) og safna flöskum í gríð og erg. Það átti að þvo bíla í dag en einhverja hluta vegna er ekkert kalt vatn í Varmahlíð sem stendur og getum við því ekki þvegið, en það verður bara tekið betur á því um Páskana.

 

En hérna ætla ég að setja niður nokkra skemmtilega punkta:

 

* Þegar steini var lítill ætlaði hann að vera hommi

* Páll skólastjóri talaði hastarlega við okkur um hversu löt við værum í þessari söfnun okkar og eftir það þá ber ég ekki nokkra virðingu fyrir þessum manni. Ég held að hann viti bara ekki neitt hvað ég er búinn að gera í vetur fyrir þennan blessaða 10. bekk.

* Mamma ætlaði að taka kökufatið heim með sér strax eftir árshátíðina en Sigfríður spurði hana hvort hún vildi ekki að við krakkarnir fengjum að njóta leifanna og mamma sagði náttúrulega já í góðmennsku sinni, en ég hef ekki séð vott af þessum kökum á boðstólnum fyrir mig !!!!!!!!!! djöfulsins lygar. Þetta hefur verið KENNARAFÓÐUR og ekkert annað, ég get svo svarið það menn eru farnir að ljúga eins og að drekka vatn.

* Páll varð alveg brjálaður yfir því að við séum alltaf að geispa í tímum, ég ætla að setja fram einhverjar skíringar á þessu skrítna athæfi okkar. Ég vill byrja á því að tala um að bróðir minn kom um daginn til mín með e-h tæki sem mælir CO2 í loftinu. Í herberginu mínu var u.þ.b 1200 CO2 eða helmingi meira en hæfilegt er sem er u.þ.b 600 CO2. Hann fór að tala um það að ef þettað magn sér svo mikið eða meira þá gerir það mann sljóann og maður missir einbeitingu, verður þreyttur og þar af leiðandi skerðir það námsárangur. Þar sem skólastofan okkar er ekki með neina loftþræstingur, gluggarinir aldrei opnir því þá verður öllum svo kalt og á meðan eru þarna inni 19 unglingar. Af þessu má leiða að magnið af CO2 í loftinu er orðið frekar mikið eða um svona 1500-2000 CO2. Og eins og ég sagði áðan þá gerir það mann þreyttan og sljóann og skerðir námsárangur okkar. Þannig að Páll ætti að byrja á því að skoða eiginn barm áður en hann fer að skella öllu á okkur. Fyrir utan þessa HÁ-vísindalegu útskíringu þá erum við nú einu sinni unglingar sem eru alltaf þreyttir og nenna ekki neinu (allaveganna miða við hvað maður er að heyra).

* Magnús er góður og ég get ekki kvartað yfir honum

* Þórdís hefur látið vel síðustu daga

* Kári er góður eins og alltaf, maður getur ekki kvartað yfir svona góðum drengjum eins og honum og Magnúsi.

* Ég hef verið að heyra að kennarar séu að flakka um blogg-síður, gott að það skula einhver lesa þessi skrif mín :haha:

Annars held ég að þetta sé bara gott.

 

Alþingiskosningar eftir 2 mán. Jjjjjjjiiiiiiiiiiiii ég hlakka til ahahahahaha

 

heyrðu svo urðu tímamótaskil í minni vísnagerð núna rétt í þessu en þá tókst mér að gera fallegt og ljúft ljóð um hana Ingu mína :haha:

 

Yndið mitt svo yndisfrítt

Yndislegur þokki

Leikur um svo ljúf og blíð

Eins og lamb á brokki

 

 

_Smári_


» 15 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 21:14:04 / smassi

Búhúhú

:cry: Það var sorgardagur í mínu ömurlega lífi í dag.

    Hann byrjaði svona; ég vaknaði þreyttur og leiður og þurfti að drullast í skólann, í skólanum biðu blóðþyrstir kennaranir efitr manni og hlógu meðan þeir sugu úr manni síðustu líftóruna í allan dag8|.

    Eftir þennan hræðilega fyrsta skóladag í tvær vikur þurftir ég að fara í krókinn, og þá kemur að því sem þetta snýst allt um. Ég fór út í banka labbaði saklaus upp að gjaldkeranum og og og rétti hikandi fram reikning upp á 66000kr. og bað vinnsamlegast að finna kostabók mína.

Þetta voru hræðilegustu 5 mín sem ég hef upplifað í langann tíma þarna var tekinn af mér meirihlutinn af öllum pening sem ég á lausann inn á minni vesælu bankabók fyrir eitt skitið æfingarleifið og akkurat núna á ég bara 23000kr lausann inn á bók :cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry: 

í tilefni þessara hörmungar ætla ég hér með að flagga í hálfa stöng: 

 Fréttamynd 405262


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 16:23:19 / smassi

smári farðu að blogga

kv steini

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 22:45:32 / smassi

Samfés 2007

Hér ætla ég að lýsa flest öllu sem gerðist á samfés og það hljómar einhvernvegin svona:

 

Skólinn var búinn og leiðin lá niður í Kaupfélagið þar sem allt var stappað af unglingum alls staðar af landinu. Ég steini og þorri tókum okkur til og splæstum í kaffi, kaffipoka, skeið og með því áður en við héldum í átt að rútu. Þar tók Ingvi kall við okkur og þuklaði mann bæði hátt og lágt.

Haldið var af stað, en lítið var gert í rútunni á leið suður og ekkert merkilegt er mér minnistætt nema að við skelltum einum börger niður í Hyrnunni.

Þegar við komum í HJALLAskóla komum við okkur fyrir og fórum að punta okkur fyrir dansleikinn. Allt gekk þetta smurt fyrir sig og vorum við komin í Laugardalshöllina rétt rúmlega 19:00.

Maður fór bara í það að ganga um og skoða staðinn. Maður t.d var að skrifa msn-ið sitt og símanúmer á einhverja töflu sem allir gátu skrifað á hahaha. Annars vegar var stórt svið og hins vegar lítið svið. Á stórasviðinu voru ekkert skemmtilegar hljómsveitir nema Dr. Spock, þar sem annar söngvarinn var í þröngum bleikum leðurbuxum með bleikan kúrekahatt og Svitabandið sem slær öll met. En aðalspenningurinn hjá mér var að sjá hann Atla spila með hljómsveit sinni Spor frá Skagaströnd, þeir stigu á svið klukkan 22:30 eða á sama tíma og Jeff Who voru að spila á stórasviðinu. Og ég sé ekki eftir því að hafa farið að sjá Spor því söngvarinn, Almar, er geðveikur hreint út sagt og djöfull voru þeir magnaðir maður hahaha ég er stoltur af honum frænda. Og svo var sagt að Jeff Who hefðu skitið í buxurnar.

Svo var bara farið út í rútu og upp í skóla aftur. Þar tókum við drengirnir á því að hella upp á kaffi og bókstaflega þömbuðum það. Það var ekki fyrr en Ivano fannst nóg komið og dótið okkar var gert upptækt sem við hættum að drekka kaffi. En það skipti svo sem ekki máli því við urðum svo ÚBER HÆBER á þessum 3-5 bollum sem maður drakk þarna að maður vissi ekki í hvorn fótinn maður átti að stiga. Við vorum bara eitthvað að fíflast þarna og ég er bara að spá í að skrifa niður punkta:

 

- Fórum inn til Húnvetninganna og sögðum Húnvetningabrandara

- Við vorum að spila Nazista ( það sprakk aftur æð á vinstra handabakinu)

- Ella var alltaf að reyna við Ingu

- Sigrún lagðist við hlið Arons

- Við vorum að hlaupa á eftir hvorum öðrum og berja hvorn annan

- Gæslumennirnir voru að verða geggjaðir

- Flestir lögðust til hvílu

- Steini og Þorri dottuðu og ég og Adam ætluðu að sprauta raksápu á þá en þeir vöknuðu svo að við fórum bara að gera það við einhverja aðra

- Jón Anton varð fyrstu fyrir barðinu

- Svo Snæbjört

- Pési rétt slapp

- Sigrún allt í einu kominn til Alexar

- Kári fékk að finna fyrir raksápunni

- Loks sofnaði ég um klukkan 06:00 og þá voru allir sofnaðir eða svona flestir, nema Þorri sem einhverja hluta vegna vakti mest allan tíman

- Ég vaknaði 07:30

- Ljósin kveikt 08:00

Um morguninn var bara tekið saman og étið, ég og Þorri tókum þá ákvörðun að hella upp á kaffi svona til að hressa upp á lífið en haldið þið að Steini hafi ekki vaknað svona hræðilega morgunfúll að það var allt niður í móti hjá honum. Hann hafði nefnilega skolað könnunar og allt það áður en það var gert upptækt og það var allt of mikið fyrirtæki að fara að þvo þetta aftur ef við myndum hell upp á. Það var reyndar bara unun að horfa og hlusta á hann.

Svo var haldið upp í Árbæjarlaug og svamlað þar eitthvað fram að söngvakeppninni. Við fórum upp úr sundi 10:30 og fórum á Subway og fengum okkur í gogginn. Eftir það var haldið á söngvakeppnina. Hún var eiginlega bara leiðinlega frá upphafi til enda svo að ég hef lítið um það að segja nema hvað að ég var orðinn svo þyrstur að mér leið eins og sólþurkaður banani i hálsinum. Ég Adam og þorri fórum þarna í röðina sem var hræðilega löng og leiðinleg og mikill hávaði sem skapaði mikinn pirring innra með mér. Þá tók ég eftir því hversu illa byggt hús Laugardalshöllin er, þakið er til dæmis bara hálfklárað miða við hvernig við Skagfirðingarnir myndum gera það. En loks þegar við komumst að þá voru pizzurnar búnar sem adam og þorri ætluðu að fá sér, svo komu fréttir um að glösin og gosið hefðu klárast þannig að á tímabili leit þetta úr fyrir að vera heimsendir en loks náði ég að næla mér í eitt kókglas eftir eitt gott rifrildu um hversu mikinn pening ég borgaði fyrir þessa blessuðu ferð mína til höfuðborgarinnar og á þessa hátíð, og að svona djöfulsins hugsunarleysi ætti ekki að eiga sér stað, um þetta röflaði ég við eina afgreiðsludömuna hahaha og svo þegar ég var búinn með kókið henti ég því á gólfið og fór.

Eftir allt þetta saman lauk söngvakeppninni og við fórum út, fyrir utan var verið að gera nammipoka en Jón Anton og Bjarni voru svo magnaðir að grípa eitt stykki kassa af bílpallinum þarna og hlupu með hann hahaha, reyndar var nammið ekki gott sem Bjarni náði, þetta voru einhverjar harðar hlaupkúlur sem enginn vildi þannig að við ákváðum að henda þessu í hvorn annan og planið var eins og ég veit ekki hvað eftir að við vorum búnir að tæma fleiri fleiri poka af þessu ógéði.

Eftir þessa skemmtun var farið inn í rútu og haldið á stað heim. Við stoppuðum í Hyrnunni þar sem maður fékk sér annan góðan burger. Þar fékk Jón Anton þá snilldarhugmynd að kaupa sítrónusafa. Á leiðinni heim vorum við bara eitthvað af fíflast með þennan safa okkar t.d að drekka hann, sprauta í augun á hvoru öðrum, sniffa og fleira sem ekki er mannsæmandi. Svo má ekki gleyma að Alex svaf með opinn munn svo að við tókum vatnsflösku og settum upp í hann og fylltum muninn af vatni, haha hann drukknaði næstum því greyjið littla.

Annars man ég ekki eftir fleiru ég var kominn heim í tæka tíð fyrir Spaugstofuna og þá er þetta allt í góðu lagi.


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 19:38:38 / smassi

Þorrablót

Vá þetta blessaða þorrablóta var algjörlega mesta snilld sem ég hef upplifað.

Byjaði á góðum skemmtiatriðum þar sem pabbi var svo frægur að koma tvisvar fyrir, annars vega þegar hann sagði "það á að rífa miðgarð" og hins vegar með hundasparkið hahahahaha það var viðbjóðslega fyndið. kallinn hefur svo gaman af því í réttunum skomm

síðan dó ég líka úr hlátri með brandarann um skagfirðinginn, húnvetninginn og svertingjann sem voru að bíða eftir að fá sjá nýfæddu börnin sín, svo kom ljósmóðirin út og sagði að börnin hefðu ruglast og hún vissi ekki hver átti hvaða barn, þá stökk skagfirðingurinn til og sagð: ég tek þennan svarta, ég tek ekki séns á húnvetninginum aaaaaaahahahahahahaha

En já svo át maður bara sína hrútspunga og sviðasultu með góðri lyst og eftir það var ballið með Geira.

Maður var bara slakur svona fyrri partinn, þurfti svolítin tíma til að koma sér í gang en þegar það gerðis þá fór maður sko og dansaði, og línudansinn var snilld.

Það geðist fleira á þessu sem ég get ekki sagt frá og eða vill ekki segja, en folk verður bara að getra í eyðurnar

Ég get sagt ykkur það að danmerkurferiðin á ekki eftir að toppa þetta þorrablót, eða það þarf þá eitthvað mikið að gerast.

og NEI ég á sko ekki við nein helvítis áfengisvandamál að stríð :D

og NEI ég svaf ekki á hólaveginum í nótt eins og sumir vilja meina

Það eru komnar nýjar “Fréttir”, þar getið þið lesið meira um blótið


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 17:37:50 / smassi

Feminsta tussur súpa sjálfsagt kveljur!

 

Jæææja elskan.. eigum við ekki að fara að blogga ? :D

-din favorit ven/veninde ;)

 

....gettu hveeeer ? :D :D

Ókey ég skal gefa þér vísbendingu.. sem eru stikk-orð, öll tengjast þau mér á einhvern hátt...

*Hjörvar - hestur - óþolinmæði - austur - sjón - eitt auga - krullur - nokia sími - Óskar - mee - kuldi - knús - danska - þrjóska & Lundey ..

..KommenT.. & ég er ? hver ? hvaðan ? hverra manna ?

 

< ---------------------- >


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 02:33:02 / smassi

sjú

plokka typpi? úú kanski á morgun. Újé!

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
23. febrúar 2012
Leitarbox

Klukkan